Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslit Eimskipsbikar karla og kvenna en þrjú lið frá Eyjum voru í pottinum. A-lið ÍBV mætir Haukum í kvöld í 16-liða úrslitum en sigurvegari viðureignarinnar mætir Val í 8-liða úrslitum. B-lið karlanna mætir HK, en þjálfari Kópavogsliðsins er Erlingur Richardsson, leikmaður B-liðsins. Það er því spurning hvort hann spili með sínu liði eða stýri sínu liði. Þess má geta að B-lið ÍBV lagði einmitt HK 2 að velli í 16 liða úrslitum.