Á Heimklettssíðunni á facebook hafa menn og konur velt því fyrir sér undanfarið hvar Gíslakletta sé að finna í Vestmannaeyjum. Flestir eru sammála um að klettarnir séu einhversstaðar við �?órsheimilið, í svokölluðu Ofanleitishrauni en hvort þeir séu komnir undir �?órsvöll eða séu enn á sínum stað er óvíst og enn hefur enginn getað bent á nákvæma staðsetningu klettanna. Gíslaklettar draga nafn sitt af hræðilegu morði sem framið var við klettana seint á 17. öld en hinn myrti var Gísli Pétursson. Svo segir í bókinni Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum eftir Jóhann Gunnar �?lafsson, sem birt er í heild sinni á Heimaslóð, segir svo frá:
�??Sunnudaginn 19. júní árið 1692 laust eftir embætti gekk Gísli Pétursson einn saman að heiman til þess að athuga fisk sinn, sem hann átti í fiskigarði uppi á Heimaey. Skömmu síðar fór Ingibjörg kona hans á eftir honum, en sendi vinnukonu þeirra hjóna, Steinunni Steinmóðsdóttur, til Ingveldar systur sinnar til þess að sækja hana. Á leiðinni heim til hennar mætti Steinunn Ingveldi, og gengu þær síðan báðar, þar til þær fundu Gísla og Ingibjörgu við kró nokkra. Var Gísli þá orðinn alldrukkinn, er þau hittust. Hafði Ingibjörg haft með sér brennivín, er hún fór eftir Gísla, og hafði gætt honum á því, en hann var mjög drykkfelldur.
Gengu þau síðan öll að annari kró þar nærri, og fóru þau hjónin og Ingveldur inn í hana, en Ingibjörg skipaði Steinunni einslega að staldra við úti og hafa gát á mannaferðum. Er inn í króna var komið, dró Ingveldur upp brennivínsflösku, og drukku þau öll þrjú úr henni. Gjörðist Gísli nú ákaflega drukkinn og seig á hann höfgi. Hallaði hann höfðinu upp að konu sinni, en hún stóð þá upp og fór út úr krónni, en bað Gísla að bíða meðan hún svipaðist um eftir lambi sínu. Í þeim svifum greip Ingveldur upp stein, sem lá í króardyrunum og færði hann í höfuð Gísla. �?aut hún síðan út, og hrundu þær systur í sameiningu krónni ofan á Gísla. Hjálpuðust þær systur og Steinunn síðan að við það, að dysja hann frekar. Krær þessar voru topphlaðin grjótbyrgi, einhlaðin.�??
Halldór B. Halldórsson, Pétur Steingrímsson og Hávarður Sigurðsson fóru um svæðið og reyndu að átta sig á hvar Gíslaklettar eru. Halldór tók göngutúrinn upp og má sjá myndbandið hér með fréttinni.