Hvattning til Eyjamanna
Kynning á Eyjagöngum
Greinarhöfundur skorar á Eyjamenn að fjölmenna á fundinn í kvöld.
Hvattning til Eyjamanna

Aðsend grein

Alfreð Alfreðsson

alfred@alfred.guide

Í kvöld kl. 20 verður haldinn kynningarfundur um væntanleg jarðgöng milli lands og ​Eyja.

Ég hef átt því láni að fagna að geta fylgst með kraftaverka​-mönnunum og frumkvöðlunum sem að verkefninu Eyjagöng standa úr stúkusæti, einstaklingar sem hafa lagt á sig ómælda sjálfboðavinnu í þágu samfélagsins okkar og velferð þess. Fundarhöld með stjórnendum stórra fyrirtækja, sveitastjórnum, verktökum og verkfræðistofum svo eitthvað sé nefnt.

Skoðanir á verkefni sem þessu eru auðvitað skiptar og má þar nefna þá umræðu sem varð í þjóðfélaginu í aðdraganda Hvalfjarðarganga, en í dag er þjóðin sátt með þá miklu samgöngubót sem göngin urðu.

Göng til Vestmannaeyja eru ekki bara samgöngubót fyrir samfélagið í ​Eyjum, það býður fyrirtækju​m okkar upp á ný tækifæri sem áður hafa ekki gefist. Göngin gefa fólki og fyrirtækjum á ​Suðurlandi líka ótal tækifæri. Aðgang að höfn fyrir fyrirtæki sem á slíku þurfa að halda, nálægð við skóla og sjúkrahús svo eitthvað sé nefnt. Ferðaþjónusta, veitingastaðir og hótel munu blómstra og verða í alfaraleið en eyjan ekki bara sýnileg eins og fjöll í fjarska.

Ég skrifa þessi orð til að skora á ​Eyjamenn að fjölmenna á fundinn í kvöld, þó ekki sé til annars en að sýna kraftaverka​-mönnunum þakklæti með nærveru sinni. Fjölmennur fundur vekur athygli eins og þetta verkefni á skilið.

Sjáumst í ​Höllinni í kvöld​.

 

Alfreð Alfreðsson

Nýjustu fréttir

Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.