Marsralli um það bil að ljúka
Myndin er tekin um borð í Þórunni Sveinsdóttur VE 401. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Leiðöngrum í stofnmælingu botnfiska – svokallað marsrall –  á Íslandsmiðum er um það bil að ljúka um þessar mundir, en Árni Friðriksson er í síðustu togunum úti fyrir Norðurlandi, sjá hérFjögur skip tóku þátt í verkefninu, togararnir Breki og Þórunn Sveinsdóttir og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir.

Um borð í þessum fjórum skipum unnu ríflega 100 manns;  32 rannsóknamenn og um 70 áhafnarmeðlimir. Þegar rallinu lýkur hefur verið togað er á 580 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið. Frá þessu er greint í frétt á vef Hafrannsóknastofnunnar.

Risastórt verkefni

Verkefnið er gríðarlega viðfangsmikið og eitt af stærstu verkefnum Hafrannsóknastofnunar. Gögnum sem safnað er gegna lykilhlutverki í stofnmati og veiðiráðgjöf fyrir flestar íslenskar botnfisktegundir. Gögnin eru einnig mikilvæg fyrir ýmiskonar vistfræðirannsóknir.

Í verkefninu er gögnum safnað um fiska sem flokkast ekki sem nytjategundir og eru þau notuð til að skoða breytingar í tegundafjölbreytileika, m.a. með tilliti til breytinga í hitastigi sjávar. Auk þess var botndýrum sem fást sem meðafli safnað á nokkrum stöðvum um borð í Árna Friðrikssyni til að fylgjast með lífmassa, fjölbreytileika og útbreiðslu botndýra við Ísland.

Ráðgert að helstu niðurstöður liggi fyrir strax eftir páska og verða þær birtar á nýjum stofnmælingarvef Hafrannsóknastofnunar, sjá nánar hér

Nýjustu fréttir

Kjötsúpukvöld Karlakórsins á föstudag
Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 
Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Radarhýsi rís á Stórhöfða
Styrkur Eyjafrétta liggur líka hjá lesendum
Vertu velkomið haust
Íþróttamiðstöðin eitt af táknum endurreisnar Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.