Á mánudaginn boðaði starfsfólk HSU í Vestmannaeyjum til hópgöngu. Markmiðið var að hvetja til aukinnar hreyfingar og gera fólk meðvitað um mikilvægi hennar.
Sjúkraþjálfarar og hjúkrunarfræðingar stofnunarinnar voru á staðnum og sáu sjúkraþjálfarar um upphitun. �?eir sem mættu í gönguna fengu heilsusafa sem kokkur spítalans útbjó handa öllum. Arna Huld Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri skipulagði gönguna, en hugmyndin kom í gegnum verkefni sem hún er að gera fyrir meistaranám sitt. �??�?g er í meistaranámi í Háskóla Íslands og áttum við að gera verkefni tengt lýðheilsu og notast við samfélagsmiðla. Á endanum fékk ég þá hugdettu að boða til þessarar hópgöngu þar sem mér sjálfri veitti ekki af smá sparki í rassinn. Við erum með svo frábært starfsfólk hér á HSU og voru allir tilbúnir að taka þátt. Kolbrún Sól sjúkraþjálfari sá um upphitun og teygjur í lokin og �?var bryti gerði dýrindis heilsudrykk fyrir okkur. �?að stefndi í góða þátttöku, en veðrið setti smá strik í reikninginn. En ég gat ekki betur heyrt en að þeir sem komu hafi verið hæstánægðir og hef ég fengið fyrirspurnir um hvort við endurtökum þetta ekki. Finnst allar líkur á að við bjóðum uppá svona heilsueflingu aftur,�?? sagði Arna Huld að lokum.