Í aðdraganda jóla - Óskar Jósúason
Óskar ásamt fjölskyldu sinni.

Fjölskylda? 

Giftur Guðbjörgu Guðmannsdóttur og saman eigum við þrjú börn. Kristínu Klöru, Jósúa Steinar og svo Nóel Gauta. 

Hvernig leggjast jólin í þig?  

Jólin leggjast alltaf vel í mig. Svei mér þá ef þau leggjast ekki alltaf betur og betur í mig. Maður hefur alltaf eitthvað meira til að vera þakklátur fyrir.  

Fer mikill undirbúningur í jólin hjá þér? 

Ekkert sérstaklega mikið. Held að það sé frekar hefðbundið. Það eru aðeins breyttir tímar í dag heldur en þegar ég var krakki. 

Ertu með einhverja sérstaka hefð á jólunum? 

Ég er með þær nokkrar. Ég vil alltaf horfa á Arthur Christmas (teiknimynd) í nóvember til að starta jólastemningunni með allri fjölskyldunni. Helst hafa það þannig að börnin vilja ekki horfa á myndina. Ég hef verið svo heppinn að fá skötu hjá Óskari Frey frænda og Lóu í hádeginu á þorláksmessu, um kvöldið förum við alltaf á Einsa Kalda. Á aðfangadag förum við svo alltaf uppá Helgafell í göngu sem endar í kirkjugarðinum til að kveikja á kertum og svo er frábært að enda árið í hlaupi til styrktar krabbavörn Vestmannaeyja. 

Hvert er þitt uppáhalds jólalag? 

Ég hlusta langmest á plöturnar frá Lón og Michael Bublé en ef ég ætti að velja eitt lag þá væri það White Christmas með Bing Crosby. 

Hvað er í matinn hjá þér/ykkur á aðfangadag? 

Kalkúnn, alltaf kalkúnn. Ég hef reynt að breyta því en fæ engu ráðið um það.  

Hvað stendur upp úr á jólunum?  

Samveran með fjölskyldu og vinum.  

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.