ÍBV fékk Aftureldingu í heimsókn í 12. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Leiknum lyktaði með sex marka tapi Eyjamanna, 19:25. Gestirnir voru með undirtökin allan leikinn og sigurinn fyllilega verðskuldaður. Kolbeinn Arnarsson, fyrrverandi leikmaður ÍBV, átti stórleik í marki Aftureldingar en hann varði í heildina 23 skot.
Markahæstur í liði ÍBV var Agnar Smári Jónsson með sex mörk.
Hér má sjá svipmyndir frá leiknum.