ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Úr leik ÍBV og ÍR. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í handbolta vann mikilvægan eins marks sigur, 26-27, á Fram í 21. umferð Olís deildar karla, í Lambhagahöllinni í kvöld. 

Fyrri hálfleikurinn var gríðarlega jafn og var staðan 8–8 eftir stundarfjórðung. Eyjamenn komust tveimur mörkum yfir, 11-13 þegar fjórar mínútur voru til loka fyrri hálfleiks. Framarar jöfnuðu leikinn í 14-14 áður en flautað var til hálfleiks. 

Síðari hálfleikurinn var svipaður og sá fyrri, allt í járnum. Eyjamenn náðu tveggja marka forystu, 17-19 á uppshafs mínútunum. Framarar jöfnuðu leikinn í 20-20 og leiddu svo með einu marki. Þegar tíu mínútur voru eftir náðu Eyjamenn þriggja marka forystu, 21-24. Fram jafnaði leikinn þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir og var staðan jöfn allt þar til Kristófer Ísak Bárðarson skoraði sigurmark Eyjamanna þegar 20 sekúndur voru til leiksloka. Lokatölur leiksins 26-27.

ÍBV er eftir sigurinn í fjórða sæti með 27 stig á meðan Fram er í sjöunda sæti með 24 stig.

Andri Erlingsson var markahæstur í liði ÍBV með fimm mörk. Ívar Logi Styrmisson, leikmaður Fram, var markahæstur í leiknum með átta mörk. Sigurmundur Gísli Unnarsson varði átta skot í marki ÍBV og Morgan Goði Garner þrjú. Petar Jokanovic var fjarverandi vegna meiðsla. 

Mörk ÍBV: Andri Erlingsson 5 mörk, Hákon Daði Styrmisson 4, Andri Magnússon 4, Sveinn José Rivera 4, Daníel Þór Ingason 3, Elís Þór Aðalsteinsson 2, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Anton Freyr Sigurðsson 1, Garðar Benedikt Sigurjónsson 1, Róbert Sigurðsson 1.

Næsti leikur ÍBV er heima gegn Val, fimmtudaginn 12. mars kl. 19:30.

Úrslit kvöldsins í Olís deild karla:

Nýjustu fréttir

ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.