ÍBV og Íslandsbanki framlengja samstarf

Í tilkynningu frá ÍBV-íþróttafélagi kemur fram að ÍBV og Íslandsbanki skrifuðu í gær undir samning um áframhaldandi samstarf. Nýr samningur er til þriggja ára eða til 2026.

Íslandsbanki hefur um árabil stutt myndarlega við bakið á ÍBV og á því verður engin breyting. Samstarf ÍBV og Íslandsbanka  hefur verið farsælt og ánægjulegt um langt skeið og því mikilvægt að halda samstarfinu áfram til að efla félagið í því mikla starfi sem það sinnir.  Samningurinn tekur yfir starfsemi félagsins frá þeim elstu og til þeirra yngstu, þó með aðaláherslu á barna og unglingastarf félagsins en þar verður til sá auður sem ÍBV-íþróttafélag byggir á.

ÍBV-íþróttafélag og Íslandsbanki lýsa yfir ánægju sinni með áframhaldandi samstarf og vilja um leið hvetja alla iðkendur til að stunda íþróttir sínar af alúð og krafti.

Þess má geta að samningurinn var undirritaður í nýjum og glæsilegum þreksal félagsins.

Mynd: ÍBV íþróttafélag.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.