ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Birna Berg Haraldsdóttir sækir að marki Stjörnunnar í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta tók á móti botnliði Stjörnunnar, í 16. umferð Olís deildar kvenna í Eyjum í dag. Leiknum lauk með tveggja marka sigri heimakvenna, 31-29.

Jafnræði var með liðunum allan leikinn og var staðan 10-10 þegar stundarfjórðungur var liðinn. Stjörnukonur komust tveimur mörkum yfir, 16-18, skömmu fyrir hálfleik. Stjarnan leiddi í hálfleik, 17-18.

Eyjakonur náðu tveggja marka forystu, 20-18, í upphafi síðari hálfleiks. Leikurinn var í járnum allan tímann og var staðan jöfn, 28-28,  þegar rúmar átta mínútur voru til leiksloka. Eyjakonur voru sterkari á lokakafla leiksins og náðu að landa gríðarlega mikilvægum sigri. Lokatölur leiksins 31-29. ÍBV er eftir leikinn í 2. sæti deildarinnar með 28 stig. Stjarnan  er í 7. sæti með fimm stig. 

Birna Berg Haraldsdóttir var atkvæðamest í liði ÍBV og skoraði tíu mörk. Amalia Frøland varði sex skot í marki ÍBV og Ólöf Maren Bjarnadóttir 3.

Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 10 mörk, Ásta Björt Júlíusdóttir 6, Sandra Erlingsdóttir 5, Ásdís Halla Hjarðar 3, Birna María Unnarsdóttir 3, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Birna Dís Sigurðardóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1. 

Leikur Vals og ÍR er einnig lokið og endaði hann með eins marks sigri Vals, 18-19. Valskonur eru með 30 stig á toppi deildarinnar, tveimur stigum meira en ÍBV.

Næsti leikur ÍBV er heimaleikur gegn Selfoss, laugardaginn 21. febrúar kl 14:00.

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.