Kvennalið ÍBV í handbolta tók á móti botnliði Stjörnunnar, í 16. umferð Olís deildar kvenna í Eyjum í dag. Leiknum lauk með tveggja marka sigri heimakvenna, 31-29.
Jafnræði var með liðunum allan leikinn og var staðan 10-10 þegar stundarfjórðungur var liðinn. Stjörnukonur komust tveimur mörkum yfir, 16-18, skömmu fyrir hálfleik. Stjarnan leiddi í hálfleik, 17-18.
Eyjakonur náðu tveggja marka forystu, 20-18, í upphafi síðari hálfleiks. Leikurinn var í járnum allan tímann og var staðan jöfn, 28-28, þegar rúmar átta mínútur voru til leiksloka. Eyjakonur voru sterkari á lokakafla leiksins og náðu að landa gríðarlega mikilvægum sigri. Lokatölur leiksins 31-29. ÍBV er eftir leikinn í 2. sæti deildarinnar með 28 stig. Stjarnan er í 7. sæti með fimm stig.
Birna Berg Haraldsdóttir var atkvæðamest í liði ÍBV og skoraði tíu mörk. Amalia Frøland varði sex skot í marki ÍBV og Ólöf Maren Bjarnadóttir 3.
Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 10 mörk, Ásta Björt Júlíusdóttir 6, Sandra Erlingsdóttir 5, Ásdís Halla Hjarðar 3, Birna María Unnarsdóttir 3, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Birna Dís Sigurðardóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.
Leikur Vals og ÍR er einnig lokið og endaði hann með eins marks sigri Vals, 18-19. Valskonur eru með 30 stig á toppi deildarinnar, tveimur stigum meira en ÍBV.
Næsti leikur ÍBV er heimaleikur gegn Selfoss, laugardaginn 21. febrúar kl 14:00.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.