ÍBV upp að hlið Gróttu og Fram
ÍBV vann í kvöld sannfærandi sigur á Gróttu í Olísdeild kvenna en leikurinn fór fram í Eyjum. Lokatölur urðu 31:23 en staðan í hálfleik var 15:12 fyrir ÍBV. Leikurinn var í jafnvægi fyrstu 45 mínúturnar en þá tóku Eyjakonur við sér og keyrðu hreinlega yfir gestina. Síðasta stundarfjórðunginn gekk hreinlega allt upp hjá ÍBV, bæði í vörn og sókn og áttu Gróttukonur engin svör við leik ÍBV.
Sigurinn er gífurlega mikilvægur, sérstaklega fyrir ÍBV sem hefði verið fjórum stigum á eftir Gróttu og Val og tveimur á eftir Fram ef liðið hefði tapað í kvöld. En þess í stað eru ÍBV, Fram og Grótta öll jöfn að stigum í þriðja til fimmta sæti og Valur aðeins tveimur stigum á undan í öðru sæti. �?að stefnir því í spennandi keppni í Olísdeildinni út deildarkeppnina. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni og á ÍBV ekki eftir að keppa við neitt af toppliðunum. �?að er því mikilvægt fyrir alla þá sem koma að liðinu, þjálfara, leikmenn og aðra, að halda einbeitningu næstu fjórar vikurnar enda er hver leikur héðan í frá, úrslitaleikur. Mikilvægt er að ná í það minnsta fjórða sætinu í deildinni, sem gefur heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Best væri auðvitað að ná öðru sætinu en rétt að taka eitt skref í einu.
Ester �?skarsdóttir átti prýðisgóðan leik fyrir ÍBV í kvöld, bæði í vörn og sókn en Ester skoraði 10 mörk í kvöld. Guðbjörg Guðmannsdóttir sýndi einnig lipra takta í horninu en fyrst og fremst er þetta sigur liðsheildarinnar.
Meðfylgjandi er myndbandsviðtal við Ester í leikslok.
Mörk ÍBV: Ester �?skarsdóttir 10, Vera Lopes 6, Telma Amado 4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Arna �?yrí �?lafsdóttir 3, Sandra Dís Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 8/1, Erla Rós Sigmarsdóttir 3.

Nýjustu fréttir

ÍBV semur við serbneskan framherja
Metár og hagnaður langt yfir áætlun
Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 
Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins
Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE
Prúðmannleg pólitík
Páskar í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.