ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Kristrún Ósk Hlynsdóttir sækir að marki Selfoss í dag. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta vann mikilvægan fimm marka sigur á Selfoss í 18. umferð Olís deildar kvenna í Eyjum í dag. Eyjakonur voru með yfirhöndina í leiknum frá upphafi og var staðan 9-6 eftir stundarfjórðung. ÍBV náði sex marka forystu fimm mínútum fyrir hálfleiks flautið. Selfoss minnkaði muninn í þrjú mörk og var staðan í hálfleik 16-13.

Selfoss konur komu ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og náðu að jafna leikinn eftir um það bil tíu mínútur í 20-20. Eyjakonur gáfu í og voru komnar fimm mörkum yfir þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Að lokum vann ÍBV öruggan sex marka sigur. Lokatölur 31-26. 

ÍBV fer inn í landsleikjapásuna í 2. sæti með 20 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Vals. Selfoss situr á botninum með aðeins fjögur stig. 

Sandra Erlingsdóttir var frábær í leiknum og skoraði tíu mörk. Ólöf Maren Bjarnadóttir varði fimm skot í marki ÍBV og Amalia Frøland fjögur.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 10 mörk, Birna Berg Haraldsdóttir 6, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 5, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Britney Emilie Florianne Clots 2, Klara Káradóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.

ÍBV fer næst á Ásvelli og spilar gegn Haukum, laugardaginn 14. Febrúar kl. 15:00. 

Úrslit úr leikjum dagsins í Olís deild kvenna má sjá hér að neðan:

Screenshot
 

Nýjustu fréttir

Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.