Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn
Íris: Ég mun ganga í flokkinn og styðja gott fólk í komandi prófkjöri.

„Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja og oddviti H-listans, Fyrir Heimaey, ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Þetta staðfestir Íris í samtali við fréttastofu RÚV. Íris segist þó ekki ætla í prófkjör fyrir flokkinn í vor, en framboðsfrestur rann út klukkan sex í kvöld.

Þetta verða að teljast mikil tíðindi en fyrr í dag var á félagsfundi Fyrir Heimaey ákveðið  að félagið byði ekki fram. Það bauð fram undir nafni H-listans 2018 og var klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum. H-listinn undir forystu Írisar hefur verið í meirihluta í tvö kjörtímabil í samfloti með Eyjalistanum.

Sjálf ætlar Íris ekki í framboð og segir ekki búið að semja um að hún verði bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins en muni taka afstöðu  komi til þess. Hún segir að mikið hafi gerst í dag. Fólk sem var með henni í framboði fyrir H-listann bjóði sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. „Og ég mun ganga í flokkinn og styðja gott fólk í komandi prófkjöri,“ segir Íris við RÚV.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.