Íris kveður H-listann með þakklæti
Íris: Ég er þakklát og auðmjúk fyrir að hafa fengið tækifæri, í umboði félaga minna, til að starfa sem bæjastjóri Vestmannaeyinga, fyrst kvenna.

„Síðustu átta ár hafa þroskað mig mikið. Þau hafa reynt á en líka veitt mér styrk og mikla gleði. Ómetanleg reynsla situr eftir og nýir vinir og samstarfsfélagar bæst í hópinn,“ segir Íris Róbertsdóttir í færslu á Fésbókarsíðu sinni í gær. Um leið tilkynnir Íris að hún hafi ákveðið að gefa ekki kost á mér á framboðslista hjá bæjarmálafélaginu Fyrir Heimaey í komandi kosningum.

„Í mínum huga er hollt og gott að þeir sem gefa kost á sér í stjórnmál staldri við eftir hvert kjörtímabil. Þegar ég lít til baka er ég mjög ánægð með þann árangur sem við höfum náð. Við höfum skapað ramma til vaxtar fyrir samfélagið og verið með raunverulega áherslu á Vestmannaeyjar sem skólasamfélag. Samstaða er nauðsynleg í hagsmunagæslu gagnvart ríkinu og ég er sérstaklega ánægð með þetta kjörtímabil í þeim efnum. Það góða samstarf sem er í bæjarstjórn og bæjarráði er samfélaginu okkar til heilla í öllum þeim áskorunum sem við mætum.

Að vel athuguðu máli hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér á framboðslista hjá bæjarmálafélaginu Fyrir Heimaey í komandi kosningum og hef ég tilkynnt stjórn félagsins þá niðurstöðu.

Ég er þakklát og auðmjúk fyrir að hafa fengið tækifæri, í umboði félaga minna, til að starfa sem bæjastjóri Vestmannaeyinga, fyrst kvenna. Þegar kjörtímabilinu lýkur í vor mun ég gera upp þessi átta ár og hlakka til að fara yfir það með ykkur í máli og myndum.

Það er mér ómetanlegt að finna þá ánægju sem þið Eyjamenna hafið látið í ljós með störf mín og fram kom meðal annars í Gallup-könnun nýverið. Að geta lokað þessum kafla með Fyrir Heimaey með þetta veganesti gerir mig glaða og stolta.

Takk fyrir traustið, öll samtölin og hvatninguna til áframhaldandi góðra verka; ég met það mikils. Í vor hefst nýr kafli. Takk og aftur takk fyrir ykkur,“ segir Íris og í gær tilkynnti hún þá ákvörðun sína, að hún ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn en ekki taka þátt í prófkjöri flokksins í Vestmannaeyjum þann 13. mars nk.

 

Nýjustu fréttir

Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Sækist eftir 3. sæti
Íris kveður H-listann með þakklæti
Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn
Arnór með fimm mörk í jafntefli Karlskrona
Rannveig Ís­fjörð sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Systurskipin landa fullfermi
Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.