Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Eyjakonur fagna marki á síðasta tímabili. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta lék sinn þriðja leik í A-deild Lengjubikars kvenna í dag, þegar þær heimsóttu Fram á Lambhagavöllinn. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Framkonur tóku forystuna í leiknum á 60. mínútu en hin unga og efnilega Milena Michaela Patru jafnaði leikinn fyrir ÍBV tíu mínútum fyrir leikslok. Allison Clark átti sendingu inn fyrir vörn Fram, í gegn á Milenu, sem skoraði af miklu öryggi.

Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Milena, sem er aðeins 15 ára gömul, skorar fyrir ÍBV en hún kom Eyjakonum yfir gegn Val í síðustu umferð Lengjubikarsins. Valskonur hins vegar svöruðu með þremur mörkum og unnu 3-1 sigur. Þá skoraði hún tvö mörk gegn Tindastól í 16-0 sigri. Eyjakonur eru með eitt stig eftir tvo leiki, þar sem Tindastóll hefur dregið sig úr keppni.

Næsti leikur ÍBV í Lengjubikarnum er gegn Víking Reykjavík, sunnudaginn 1. mars.

Staðan í riðli 2 Í A-deild:

Screenshot

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.