�?essa dagana er í fullum gangi, í höfuðborginni, hin árlega tónlistahátíð Iceland Airwaves. �?ar kemur meðal annars fram Eyjamaðurinn Unnar Gísli Sigurmundsson betur þekktur sem Júníus Meyvant. Við heyrðum í honum á dögunum og var þá kominn í hann töluverður spenningur. �??�?etta verður í fyrsta sinn sem ég spila þessi lög live með bandi, þannig að það er þó nokkur spenningur kominn í mann.” Júníus Meyvant kom fram tvisvar í gær miðvikudag, í Gamla Bíói og á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Hann kemur svo fram í dag kl. 16.00 á Kex hostel sem er einn af svo kölluðum “off-venue” stöðum. En þaðan sendir Bandaríska útvarpsstöðin KEXP út alla hátíðina bæði hljóð og mynd og má því sjá og hlýða á Unnar Gísla og félaga á slóðinni
kexp.org/video/live í dag kl. 16. �?egar við heyrðum í Unnari á dögunum var hann einmitt ný kominn frá Seattle þar sem hann heimsótti umrædda útvarpsstöð. Afraksturinn af því má m.a. sjá í spilaranum hér að ofan.
Júníus Meyvant kemur svo aftur fram á “off-venue” viðburði á föstudaginn kl. 17 á The Laundromat Café og í Landsbankanum, Austurstræti á laugardaginn kl. 15. Hann endar þetta svo á tónleikum í Norðurljósasal Hörpu á kl. 21.00 sama dag en þar er hann með alla hljómsveitina með sér. �??�?að verða þrír blásarar með mér með baritónsax, básúnu og trompet svo verður ein fiðla. Reyndar spilar barítónleikarinn einnig á fiðlu þannig að ég get líka haft tvær fiðlur. Síðan verð ég með tvo bræður mína með mér á sviði, þá Guðmund �?skar og �?laf Rúnar. �?riðji bróðirinn, Einar, er því miður í Vestmannaeyjum núna þannig að ég get ekki misnotað hann, annars væri hann pottþétt með líka.�?? Unnar Gísli er sonur hjónanna Sigurmundar Gísla Einarssonar og Unnar �?lafsdóttur og hefur því, eðli málsins samkvæmt, verið mikil tónlist á heimilinu.
�?landameikið togar
Unnar Gísli segist mest hafa verið í upptökum að undanförnu en er svo á leiðinni til Hollands í janúar þar sem hann spilar á Eurosonic Noorderslag sem er mikill tengslamyndunarvettvangur fyrir evrópska tónlistarbransann og hefur tekið þátt í að kynna nýja upprennandi tónlistarmenn fyrir tónlistarheiminum þar. Íslensk tónlistaratriði sem leikið hafa á hátíðinni hafa mörg fengið fjölda bókana á tónlistarhátíðir og tengsl við lykilaðila sem hjálpa við að koma atriðunum á framfæri. Uppselt er á hátíðin á hverju ári, og hana sækja 3.200 fulltrúar úr tónlistarbransanum, 33.000 gestir, 300 tónlistaratriði og samhliða tónlistarhátíðinni er rekin tónlistarráðstefna með 150 pallborðsumræðum, fyrirlestrum, viðtölum, vinnustofum, partíum og fundum. En Ísland verður fókusþjóð þar þetta árið. �?etta er því mikið tækifæri til frekari frama erlendis, en er það eitthvað sem togar í okkar mann?
�??Já, markaðurinn er náttúrulega mikið stærri heldur en hérlendis og það er mikið �??hæp�?? fyrir íslenskri tónlist í augnablikinu. Sérstaklega þegar þú syngur á ensku. Enskan er einhvern veginn bara auðveldari viðureignar heldur en íslenskan. Hún er svo rík af orðum að þú getur nánast bullað bara eitthvað og það hefst. �?g á samt pottþétt eftir að gera eitthvað á íslensku einhverntímann. �?að þarf bara að vera svo rosalega vel gert til þess að mér finnist það virka. Hún er erfið íslenska tungan.�??
Fyrsta lagið sem Júníus Meyvant sendi frá sér, Color decay, kom út í maí og fékk gríðarlega góðar viðtökur hér á landi og rauk beint á topp vinsældarlista útvarpsstöðvanna. Einnig hefur það verið spilað töluvert erlendis. �??�?g hef fengið spilun hér og þar út í heimi. �?að er alltaf einhver að senda mér skilaboð um að hafa heyrt í mér í útvarpinu til að mynda í Californiu, Texas og víðar. �?annig að þetta er svona að dreifast hægt og bítandi. En svo fer þetta náttúrulega ekkert almennilega af stað fyrr en maður fer út og fylgir þessu eftir og er mikill þrýstingur frá umboðsmanni mínum að gera það.�??
Plata í byrjun árs
En hvenær er von á nýju efni?
�??�?að er eitthvað meira á leiðinni og ætti að koma út núna í kringum Airwaves. En þetta er alltaf basl þegar maður er svona �??soundperri�?? eins og ég er. Maður er hálf hugsjúkur og geðveikur í stúdíóinu og er í rauninni aldrei ánægður en verð á endanum sáttur og verð bara stoppa þar. Gott er bara ekki nóg, þetta verður að vera frábært. Annars er ég búinn að taka upp grunna að einum ellefu lögum og reikna ég með að gefa út tíu til tólf laga plötu í byrjun næsta árs.�??
Fyrir þá sem ekki geta beðið eftir plötunni þurfa ekki að örvænta því Unnar Gísli kemur til með að flytja megnið af þessum lögum á Iceland Airwaves.
Hvenær má svo búast við tónleikum í Vestmannaeyjum?
�??Vonandi bara sem fyrst, það væri gaman að gera eitthvað í desember. Trommarinn minn er að fara til Kúbu núna strax eftir Airwaves að læra betur á kóngur og kemur aftur í byrjun desember. �?g myndi þá vilja gera eitthvað flott úti í Eyjum,�?? sagði Unnar Gísli að lokum og grínast með aðspurður hvort hann fái ekki bara foreldrana með sér. �??The Simmsons,�?? segir hann og hlær.
�?arna er bráðefnilegur tónlistarmaður á ferðinni sem vert er að fylgjast með og hvet ég fólk til að gera sér ferð á tónleika hans ef þeir mögulega geta. Einnig er hægt að hlýða á tvö laga hans í sérstakri Airwaves upphitun á vef Landsbankans á
landsbankinn.is/icelandairwaves/.