Leik ÍBV og Fram frestað

Ekkert verður af því að Fram kíki til Eyja í kvöld en liðið átti að leika gegn Íslandsmeisturum ÍBV klukkan 18:00. Ekkert hefur verið siglt til Landeyjahafnar það sem af er dags og því hefur leiknum verið frestað. Ekki er hægt að spila á morgun, þar sem Fram á leik í bikarkeppninni á laugardag og […]

Eyjakvöld frestast um viku

Sökum veikinda og samgönguerfiðleika frestast Eyjakvöld Blítt og létt hópsins sem vera átti, samkvæmt hefð, á Kaffi Kró í kvöld um viku. �?að verður því haldið fimmtudaginn 13. nóvember. Beðist er velvirðingar á þessu og er fólk hvatt til þess að syngja þess í stað heima með ættingjum og vinum og mæta svo klárt í […]

Lækkandi alda og líkur á ferð Herjólfs seinnipartinn

Á heimasíðu Herjólfs segir að enn sé ölduhæð við Landeyjahöfn of há eða 3.2 metrar. Næsta athugun er kl. 15.00. �?á segir að miðað við fyrirliggjandi ölduspá séu líkur að skipið geti siglt til Landeyjahafnar kl. 17.30 og svo aftur kl. 20.30. �?lduspá fyrir næstu daga er hagstæð. (meira…)

Taka á móti Fram í kvöld

Karlalið ÍBV tekur á móti Fram í kvöld í Olísdeildinni en þetta er fyrsta umferðin eftir landsleikjahlé. ÍBV er í 5. sæti deildarinnar með 9 stig eftir 8 leiki en Fram er 9. og næst neðsta sæti með aðeins 4 stig. Eins og staðan Safamýrarliðsins sýnir, hefur gengi liðsins ekki verið gott það sem af […]

Júníus Meyvant í beinni frá Kex hostel í dag kl. 16

�?essa dagana er í fullum gangi, í höfuðborginni, hin árlega tónlistahátíð Iceland Airwaves. �?ar kemur meðal annars fram Eyjamaðurinn Unnar Gísli Sigurmundsson betur þekktur sem Júníus Meyvant. Við heyrðum í honum á dögunum og var þá kominn í hann töluverður spenningur. �??�?etta verður í fyrsta sinn sem ég spila þessi lög live með bandi, þannig […]

Grímur kokkur hlaut Vitann – verðlaun Morgunblaðsins

Grímur kokkur er eitt fyrirtækja sem hlýtur viðurkenningu Morgunblaðsins, Vitann 2014. Morgunblaðið veitir 10 vaxtabroddum í atvinnulífinu viðurkenningu eftir hringferð blaðsins um landið og hefur viðurkenningin hlotið nafnið Vitinn. Í umfjöllun um fyrirtækið í Morgunblaðinu í dag kemur m.a. fram að Grímur kokkur hafi vaxið á hverju ári frá því að starfsemin hófst, og er […]

Sjávarútvegsfyrirtæki í Eyjum greiða 1.73 milljarða í veiðigjöld

Sjávarútvegsfyrirtæki greiddu rúma 9 milljarða króna í veiðigjöld fyrir fiskveiðiárið 2013-2014. �?etta kom fram hjá Sigurði Inga Jóhannssyni við fyrirspurn á Alþingi í fyrradag. Hæstu veiðigjöldin koma frá Reykjavík eða rúmlega 2.147 milljarðar króna. Næstmestu veiðigjöldin koma frá Vestmannaeyjum, rúmlega 1.73 milljarðar króna eða tæplega 20% af heildargjöldunum. Almenna veiðigjaldið í Eyjum er 592 milljónir […]

ÍBV treyjur David James á uppboði

David James, fyrrum aðstoðarþjálfari og markvörður ÍBV var fyrir nokkrum misserum úrskurðaður gjaldþrota. James, sem lék um árabil með enska landsliðinu, Liverpool, Manchester City, Portsmouth og fleiri félögum, hefur sankað að sér mörgum fótboltatreyjum, sem nú eru boðnar upp, væntanlega til að fá upp í skuldir. �?ar má m.a. finna fjórar ÍBV-treyjur en þetta kemur […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.