Glæsilegir tónleikar í Hörpu í minningu 100 ára ártíðar Oddgeirs Kristjánssonar eru nýafstaðnir. Tónleikar sem settu brjóstkassann vel framávið á viðstöddum Vestmannaeyingum, sem stoltir og ánægðir í hjarta sínu gengu úr Hörpu þetta kvöld. Og öll erum við stolt af þessum frábæru lögum sem við syngjum við öll tækifæri.