Karlalið ÍBV tapaði fyrir FH
FH bar sigur­orð af ÍBV 36:30 þegar liðin mætt­ust í fjórðu um­ferð Olís­deild­ar karla í hand­knatt­leik í Kaplakrika í dag. Bæði lið hafa fimm stig eft­ir fyrstu fjór­ar um­ferðir deild­ar­inn­ar. Mbl.is greinir frá.
Eyja­menn hófu leik­inn af mikl­um krafti og Sig­ur­berg­ur Sveins­son lék við hvern sinn fing­ur í upp­hafi leiks­ins. FH-ing­ar náðu hins veg­ar að þétta vörn­ina og bakvið vörn­ina var Ágúst Elí Björg­vins­son í miklu stuði. Sókn­ar­leik­ur FH batnaði auk þess þegar á leið á fyrri hálfleik­inn og staðan var 15:15 í hálfleik.
Tveim­ur leik­mönn­um var vísað af velli með rauðu spjaldi í fyrri hálfleik. Ágústi Birg­is­son, leik­manni FH, var vísað af velli með beinu rauðu spjaldi fyr­ir harka­legt brot á Agn­ari Smára Jóns­syni, leik­manni ÍBV. �?á var Sindra Har­alds­syni, leik­manni ÍBV, vikið þris­var sinn­um af velli í tvær mín­út­ur og var þar af leiðandi vísað af velli með rauðu spjaldi.
FH hóf seinni hálfleik­in bet­ur og náði mest fjög­urra marka for­skoti. Munaði þar miklu um fram­lag Jó­hans Birn­is Ingvars­son­ar í sókn­ar­leik FH, en Jó­hann Birg­ir skoraði mörk í öll­um regn­bog­ans lit­um. ÍBV neitaði hins veg­ar að gef­ast og minnkaði mun­inn í tvö mörk um miðbik seinni hálfleiks.
�?á kom ann­ar góður kafli hjá FH-liðinu þar sem Ágúst Elí Björg­vins­son skellti í lás í marki FH og FH náði sex marka for­ystu. �?að for­skot lét liðið ekki af hendi og niðurstaðan sex marka sig­ur heima­manna.
Jóni Bjarna �?lafs­syni, leik­manni FH, var vikið af velli í þriðja skipti und­ir lok leiks­ins og var þar af leiðandi vísað af velli með rauðu spjaldi.
Jó­hann Birg­ir Ingvars­son var marka­hæst­ur í liði FH með 10 mörk, en Sig­ur­berg­ur Sveins­son var hins veg­ar marka­hæst­ur í liði gest­anna sömu­leiðis með 10 mörk. Ágúst Elí Björg­vins­son varði 17 skot í marki FH, en Kol­beinn Aron Arn­ar­son og Andri Ísak Sig­fús­son vörðu sam­tals níu skot í marki ÍBV.
FH jafnaði ÍBV að stig­um með þess­um sigri, en liðin hafa hvort um sig fimm stig eft­ir fjór­ar um­ferðir.

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.