Kenneth Máni fór á kostum á Háaloftinu og endurtekur leikinn í kvöld
�??�?etta var frábær salur og kom mér á óvart því maður veit aldrei á hverju maður getur átt von á. �?etta voru um helmingi færri gestir en á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu en það gerði ekkert til því stemmningin var frábær,�?? sagði Björn Thors eftir að hafa troðið upp á Háaloftinu sem Kenneth Máni. Ekki var uppselt en þeir sem ekki mættu misstu af miklu en geta bætt sér það upp í kvöld því Björn ákvað að slá upp annarri sýningu klukkan níu. Er hiklaust hægt að mæla með sýningunni. �?að var mikið hlegið en á köflum var stutt í tárin en eins og Kenneth Máni segir, þá er hann heiðarlegur glæpamaður og það er kannski það sem er aðall sýningarinnar að hún er svo heiðarleg í einfaldleika sínum. Og líka frábær skemmtun.
lSýningin Kenneth Máni var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í haust og hefur verið sýnd um 70 sinnum við mikið lof 20.000 sýningargesta. Höfundar sýningarinnar eru Björn Thors sem fer með hlutverk Kenneths Mána, Jóhann �?var Grímsson sem skrifaði, ásamt fleirum, Næturvaktina, Dagvaktina og Fangavaktina og Saga Garðarsdóttir uppistandari og meðhöfundur síðasta áramótaskaups. Björn og �?var byrjuðu fyrir um tveimur árum að ræða hugmyndina um að gera eitthvað meira með persónu Kenneths Mána.
�?eir fundu fyrir smá pressu að vinna meira með þennan senuþjóf úr Fangavaktinni. Fyrir um ári hófst svo vinnan við handritið að sýningunni og kom þá Saga Garðarsdóttir inn í hópinn. Björn segir að flestir kannist við einstaklinga sem hafa sömu persónueinkenni og Kenneth Máni en hann glímir við lesblindu, athyglisbrest, ofvirkni og almennt hömluleysi. �??Tveir leyndir draumar hjá mér sameinast í þessu verki, einleikur og uppistand, og var þetta verkefni því tilvalið fyrir mig�?? segir Björn.
Hann segist vera svakalega spenntur að koma til Eyja og sýna verkið fyrir Eyjamenn. Sýningin er þann 22. apríl á Háaloftinu og hefst kl. 21:00. Forsala er hafin í Tvistinum og kostar miðinn 4.900 kr.

Nýjustu fréttir

Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.