KFS gerði sér lítið fyrir og náði í stig á útivelli gegn varaliði Víkings í Reykjavík, Berserkjum en liðin mættust í höfuðborginni í gærkvöldi. Fyrri leik liðanna í Vestmannaeyjum lauk með óvæntum sigri Berserkja, 2:3 og því áttu Eyjamenn harma að hefna. Lokatölur í gær urðu hins vegar 2:2 jafntefli og náðu leikmenn KFS þar með í sitt fyrsta stig á útivelli í sumar.