Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja mótmælir harðlega hækkun fargjalda Herjólfs og krefst að stjórnvöld dragi hana tilbaka. Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja leggst alfarið gegn áframhaldandi niðurskurði á opinberri þjónustu í Vestmannaeyjum. Nú þegar er niðurskurðurinn kominn vel yfir sársaukamörk hjá Heilbrigðisstofnun Vestmanneyja, lögreglunni og Framhaldsskóla Vestmannaeyja.