Kristín Klara Óskarsdóttir, leikmaður ÍBV í fótbolta, lék í 5-0 sigri Íslands á Serbíu í lokaleik u-17 ára landsliðs Íslands, í seinni undankeppni EM í Serbíu.
Íslenska liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum, fyrst gegn Frakklandi, 2-0 og síðar gegn Austurríki, 1-0.
Kristín Klara kom inn á í síðari hálfleik í liði Íslands og gerði mjög vel í hægri bakvarðarstöðunni. Staðan var 3-0 í hálfleik og bætti íslenska liðið tveimur mörkum við í síðari hálfleik. Kristín spilaði einnig á móti Austurríki og lék samtals í þremur af fimm leikjum Íslands í undankeppninni.
Frakkland vann 3-1 sigur á Austurríki á sama tíma og tryggði sér sæti í lokakeppni EM 2026. Íslenska liðið tryggði sér með sigrinum á Serbíu áframhaldandi sæti í A-deild undankeppninnar fyrir fyrstu umferð undankeppni EM 2027.