Við, feðginin Védís og Guðmundur organisti sendum öllum Eyjamönnum, vinum okkar bestu jóla og nýjársóskir. Við erum nú stödd í Brisbane í Ástralíu og fjarri því góða gamni að spila í Landakirkju yfir jól og áramót, sem við höfum gert sl. 25 ár. En eitt tekur við af öðru, hér er yndislegt að vera og okkur líður vel.
Með von um að hátið ljóss og friðar gefi ykkur öllum velfarnað á komandi ári.
Védís, Gokhan, Elíana, Guðmundur og Deng.