Nú er Kvenfélagið Líkn farið af stað með sína árlegu jólakortasölu og í ár fengum við mynd eftir Brynhildi Friðriksdóttur til þess að prýða listamannakortin okkar og tvær myndir eftir Jóhannes Jensson til þess að vera á eyjakortunum okkar. Í ár er listamannakortið ekki með neinum texta svo hægt er að nota það sem tækifæriskort allt árið um kring. Einnig fórum við í endurnýtingu á eldri jólakortum frá okkur og létum klippa þau í einföld merkispjöld með fallegum myndum frá eyjum sem hægt er að nota allt árið um kring. Svo erum við auðvitað með hinu hefðbundu jólakort líka. Kortin frá Líkn eru til sölu i Vöruval, Sjúkrahúsinu og Kletti og allur ágóðinn rennur í sjúkrahússjóð Líknar. Vonumst við eftir góðum viðtökum.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.