Kvikmyndatökulið á vegum Saga Film hefja kvikmyndatökur við Hásteinsveg 6 í dag. Kvikmyndatökurnar standa yfir fimmtudag, föstudag og laugardag. Það er okkur mikið í mun að vinna í góðu samstarfi við ykkur kæru íbúar og er það okkur ofarlega í huga að þið verðið ekki fyrir óþægindum vegna starfs okkar. Okkur fylgja mikið af bílum ásamt nokkrir af stærri gerðinni og þó nokkuð umstang en við munum reyna að lágmarka umgang og truflun eins og mögulegt er.
Ef eitthvað kemur upp á eða þið verðið fyrir ónæði eða óþægindum af okkar völdum biðjum við ykkur um að hika ekki við að hafa samband og munum við bregðast við eins fljótt og auðið er.
Erla Ásmundsdóttir
S: 8583015




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.