
Haustið 2022 var haldið námskeið um kyrrðarbæn í Eyjum og var góð þátttaka. Eftir það hittumst við vikulega í Landakirkju. En undanfarið höfum við ekki komið saman og nokkrir hafa saknað þessara stunda. En núna ætlum við að hittast á þriðjudögum kl. 17.00 í Landakirkju og við byrjum þriðjudaginn 3. febrúar.
Við komum saman rétt fyrir kl. fimm og sá sem leiðir stundina les nokkur uppörvandi orð og svo sitjum við í þögn í 20 mínútur og þegar hugsanir fara af stað höfum við bænaorð að leita til. Þetta er ekki langur tími en gefur mikið. Kyrrðarbæn hentar fólki á öllum aldri og allir geta iðkað hana óháð kirkjudeild eða menningu. Það getur verið erfitt að byrja, en með aga og endurtekningu verður kyrrðarbænin eitt það mikilvægasta í lífinu. Jesú segir;.. Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið….Jóh 14.6.
Með ástundun kryrrðarbænar tel ég að við nálgumst líf í fullri gnægð. Það er margs konar styrkur fyrir líkamann að iðka kyrrðarbæn og með ástundun hennar og ég hef kynnst sjálfri mér betur. Ég hef öðlast innri lækningu og fundið fyrir kærleika á dýpri hátt en áður. Tilfinningar mínar eru í meira jafnvægi og andleg líðan er betri. Samband mitt við sjálfa mig, Guð og aðra hefur styrkst. Nánari upplýsingar eru hjá Kyrrðarbænarsamtökunum á kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is.
Þóranna M. Sigurbergsdóttir