Bergey VE og Vestmannaey VE hafa báðir landað í síðasta sinn fyrir páskahátíðina. Bergey landaði í Þorlákshöfn á sunnudag og Vestmannaey landar í heimahöfn í dag. Frá þessu er greint á vefsíðu Síldarvinnslunnar.
Þar er rætt við skipstjórana og þeir spurðir frétta. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var sáttur við aflabrögðin en ekki við veðrið. „Það aflaðist ágætlega í túrnum en veðrið var hinsvegar leiðinlegt. Í reyndinni var bræluskítur að mestu en það er að komast þokkalegur vertíðarbragur á veiðina. Þetta var stuttur túr eða rúmlega tveir sólarhringar og við vorum um einn og hálfan sólarhring að veiðum. Veitt var á Planinu vestan við Eyjar. Þarna fékkst fullfermi og er mest af þorski og skarkola í aflanum. Að löndun lokinni í Þorlákshöfn var haldið til Eyja og það er vikulangt páskastopp framundan,” sagði Jón.
Skipstjóri á Vestmannaey í túrnum var Valtýr Bjarnason. Valtýr er stýrimaður á skipinu en þetta er þriðji túrinn sem hann fer með það sem skipstjóri. Að sögn Valtýs var veitt á Planinu og aflaðist ágætlega þrátt fyrir hundleiðinlegt veður. „Þetta var stuttur túr og aflinn var mest þorskur og koli. Það var skítaveður allan túrinn og reyndar hefur allur mánuðurinn verið býsna krefjandi veðurfarslega. Nú tekur við páskastopp og ég held að menn hafi bara gott af dálítilli pásu,” sagði Valtýr.