Kaupþing banki færði í dag Landgræðslufélagi Hrunamanna eina milljón króna til styrktar starfi félagsins. Hrunamenn hafa lengi unnið að landgræðslu á afrétti sínum með góðum árangri en hann er víðáttumikið landsvæði sem nær frá byggð, inn með Hvítá að austan, norður fyrir Kerlingarfjöll að Hofsjökli.