Laxey – Fyrstu hrognin komin

Í morgun komu fyrstu hrognin í seiðaeldisstöð Laxeyjar við botn Friðarhafnar. Þar með er starfsemin hafin þó í litlu magni sé. Hrognin koma frá Benchmark Genetics, áður Stofnfiskur, sem er leiðandi fyrirtæki í kynbótum, fiskeldi og framleiðslu á laxahrognum.

„Fyrsti skammturinn er 315.000 hrogn  en í framtíðinni eigum við að geta tekið við allt að 1.200.000 hrognum í einu,“ segir Kristín Hartmannsdóttir verkefnastjóri. „Hrognin koma í frauðplastkössum og voru sótthreinsuð við komuna. Þau voru sett í klakskápana og þar eru þau í  84 daga. Eftir þessa 84 daga verða seiðin flutt yfir í startfóðrun, í svokölluðu RAS1 kerfi. Haustið 2024 stefnum við á að flytja seiði í áframeldið í Viðlagafjöru.“

Framkvæmdir eru á fullu á báðum stöðum og mörg handtök eftir en allt er á áætlun að því er kom fram hjá Kristínu. Um 120 manns koma að framkvæmdunum.

 

Mynd: Chris Malanka yfirmaður ferskvatnseldis, Guðmundur Sundström og Þórdís Þorvaldsdóttir við klakskápana.

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.