Leggja til að endurskoða deiliskipulagstillögu
Skjáskot af Já.is

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja fundaði í gær þar var meðal annars til umræðu deiliskipulag á athafnasvæði AT-1 við Græðisbraut. En á síðasta fundi óskaði Umhverfis- og skipulagsráð eftir greinargerð Skipulagsfulltrúa og skipulagsráðgjafa Alta. Greinargerð dags. 25. nóvember 2019 lögð fram.

Eftirfarandi tillaga var samþykkt með 3 atkvæðum H- og E-lista gegn 2 atkvæðum D-lista. Ráðið leggur til að endurskoða deiliskipulagstillögu og sbr. 4. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Falli ekki að umhverfinu
Fulltrúar D- lista bókuðu þá: Í ljósi þeirra athugasemda sem komu fram við áður auglýsta tillögu telja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sérkennilegt að nú taki meirihluti ráðsins ákvörðun um að afturkalla þá tillögu sem lá fyrir og hefja vinnu við nýja tillögu sem mun fela í sér mun meira byggingarmagn á svæðinu en þegar var auglýst og mun vera mun umdeildari en fyrri tillaga. Ljóst er að mati undirritaðra að þær óskir sem fram hafa komið falla ekki að umhverfinu og nálægum byggingum í kring. Undirrituð hefðu talið farsælast að áfram yrði unnið í þá átt sem fyrri tillaga gerði ráð fyrir. Þá telja undirrituð að uppbygginga á húsi af þeirri stærðargráðu sem um ræðir falli betur á nýju iðnaðarsvæði við flugvöllinn.

Mikilvægt að Vestmannaeyjabær standi ekki í vegi fyrir eða hindri að fyrirtæki
Meirihluti E- og H- lista vill bregðast við óskum lóðarhafa enda um að ræða stækkun á byggingareit innan lóðarmarka lóðarhafa.
Einnig telur meirihluti E- og H- lista mikilvægt að Vestmannaeyjabær standi ekki í vegi fyrir eða hindri að fyrirtæki í Vestmannaeyjum geti stækkað og útvíkkað sína atvinnustarfsemi.
Meirihluti E- og H- lista telur mikilvægt að vandað sé til málsmeðferðar og farið sé eftir lögum. Segir í bókun meirihlutans

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fögnuðu því að lokum að meirihlutinn ætli að fara eftir lögum í málinu.

Nýjustu fréttir

Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn
Sjálfstæðisflokkurinn – Utankjörfundar atkvæðagreiðsla í prófkjöri hafin
Sandra skoraði sjö mörk í frábærum sigri Íslands
Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.