Ekkert verður af því að Fram kíki til Eyja í kvöld en liðið átti að leika gegn Íslandsmeisturum ÍBV klukkan 18:00. Ekkert hefur verið siglt til Landeyjahafnar það sem af er dags og því hefur leiknum verið frestað. Ekki er hægt að spila á morgun, þar sem Fram á leik í bikarkeppninni á laugardag og því hefur leikurinn verið fluttur yfir á mánudaginn 24. nóvember klukkan 18:00. �?etta kemur sér kannski ekkert sérstaklega vel fyrir ÍBV enda átti 12 daga landsleikjahléi að ljúka í kvöld. Nú bætist hins vegar við vikufrí í viðbót hjá ÍBV, sem situr hjá í fyrstu umferð bikarkeppninnar sem fer fram um helgina.