Meistaraflokkur ÍBV í knattspyrnu gefur eiginhandarártanir í Eldheimum á laugardaginn kl. 14.00. Leikmennirnir ætla að safna orku og skoða Eldheima fyrir næsta leik. Sagan af baráttunni við náttúruöflin í Heimaeyjargosinu er tilvalin hvatning til að berjast og gefa allt í næsta leik, sem verður hörku leikur gegn KR.
Í framhaldinu ætla leikmenn svo að gefa stuðningsmönnum eiginhandaráritanir. Stuðningsmenn eru hvattir til að mæta í kaffi Eldheima kl. 14.00 á laugardaginn.
Hér að neðan má svo sjá kynningarmyndband um sjálfvirku leiðsögnina í Eldheimum.