Hulda í Vatnsdal horfir gjarnan á hlutina í gagnrýnu ljósi með hag Vestmannaeyja að leiðarljósi. Á facebook síðu sinni skrifar hún um almannavarnarnefnd: Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja hefur ekki haldið fund síðan 11.02.2013. Hættumat fyrir Vestmannaeyjar var gert af Almannavarnarnefnd Ríkislögreglustjóra 2011. �?ar segir, vegna eldgosahættu væri rétt að vinna að viðbragðsáætlun með rýmingaráætlun. Hvar er þessi viðbragðsáætlun með rýmingaráætlun?
Hefur Almannavarnarnefnd eftirlit með því að tæki sem eru staðsett á Heimaey sem vaktar breytingar og senda á Veðurstofu, sem gætu bent til yfirvofandi eldgoss séu yfirleitt í lagi? �?að þýðir ekkert að stinga höfðinu í sandinn, hér verða að vera áætlanir sem gætu komið í veg fyrir manntjón.