Þótt útlitið sé dökkt í augnablikinu hvað loðnuvertíðina varðar er kannski ekki ástæða til þess að gefa upp alla von. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur upplýsir í viðtali í nýjustu Fiskifréttum sem koma út í dag að a.m.k. tvisvar áður hafi komið upp svipað ástand og nú, en í bæði skiptin hafi loðnan skilað sér um síðir til hrygningar í þokkalegu magni upp að suðurströndinni.