Loðnumæling Hafrannsóknastofnunar sem staðið hefur yfir frá í upphafi síðustu viku er nú langt komin. Í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun segir að einungis eigi eftir að fara yfir takmarkað svæði út af Vestfjörðum sem rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir eru að sinna, en mælingum veiðiskipanna Heimaeyjar, Polar Ammassak og Barða er lokið fyrir austan land (mynd 1).

Mynd 1. Yfirferð skipa í loðnumælingum dagana 19.-25. janúar 2026 (lifandi á https://skip.hafro.is/).
Þótt mælingum sé ekki lokið vill Hafrannsóknastofnun greina lítillega frá niðurstöðum sem varða ástand loðnunnar og dreifingu. Vísindamenn stofnunarinnar munu svo á næstu dögum yfirfara gögn, meta stærð veiðistofnsins, óvissu í mælingunum og afrán ásamt því að ákvarða ráðgjöf fyrir yfirstandandi vertíð. Sú ráðgjöf mun byggja bæði á þessari mælingu (vegur 2/3) og mælingum á stærð veiðstofnsins haustið 2025 (1/3). Það má búast við ráðgjöfinni seinni hluta þessarar viku.
Loðnan var dreifð yfir stóran hluta yfirferðasvæðisins (mynd 2). Mesti þéttleikinn var í fremsta hluta göngunnar fyrir austan land og úti af Húnaflóa. Langstærsti hluti loðnunnar fyrir norðan og austan land var kynþroska og mun því hrygna á næstu vikum. Hrognaprósenta loðnunnar var á bilinu 6-8% víðast hvar.

Mynd 2. Leiðarlínur fimm skipa í loðnumælingu í mismunandi litum dagana 19.-25. janúar 2026 og þéttleiki loðnu samkvæmt bergmálsmælingum (línur hornrétt á leiðarlínur).
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.