„Þetta sýnir það bara ef menn leggja sig ekki fram og gera ekki eins og lagt er upp með fyrir leikinn, þá vinnur maður ekki,“ sagði Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV ósáttur eftir tap gegn Grindavík í Eyjum í kvöld. Hann taldi ekki að veðrið hefði haft áhrif á leik liðsins. „Nei ef það ætti að vera eitthvað, þá hefðum við átt að græða á þessu roki enda þekkjum við það ágætlega. Við fengum nokkrar sóknir í fyrri hálfleik þegar við héldum boltanum niðri og hefðum átt að skora en þetta var bara vitleysa í seinni hálfleik, kýlingar út í loftið og menn eiga að vita betur en að reyna svoleiðis undan vindinum.“