Innanríkisráðherra hefur lagt fram lagafrumvarp á Alþingi sem gerir ráð fyrir því að lögregluembættum verði fækkað úr 15 í 8. Fjármálaráðuneytið segir að ný og stærri embætti geti betur sinnt lögbundnum skyldum sínum og náð þeirri hagræðingarkröfu sem gerð hafi verið til þeirra á undanförnum árum.