ÍBV tekur á móti toppliði Vals í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld þegar lokaumferð Olísdeildar karla fer fram. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og fara allir leikir umferðarinnar fram á sama tíma.
Valur er á toppi deildarinnar með 32 stig eftir 21 leik, með 16 sigra og fimm töp. ÍBV situr í fjórða sæti með 27 stig eftir 13 sigra, eitt jafntefli og sjö töp. Úrslit lokaumferðarinnar ráða endanlegri röðun liðanna fyrir úrslitakeppnina sem hefst í kjölfarið. FH er í öðru sæti deildarinnar með 31 stig og Haukar í því þriðja með 30 stig þegar ein umferð er eftir.
Handknattleiksdeild ÍBV hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna á leikinn í kvöld og styðja liðið í lokaumferðinni. Í tilkynningu frá deildinni segir að liðið þurfi á sigri að halda til að tryggja sér sem besta stöðu fyrir úrslitakeppnina.
Stuðningshópurinn Hvítu riddararnir hyggst einnig mæta sterkur til leiks og verður upphitun fyrir leikinn klukkutíma áður í gamla salnum í Íþróttamiðstöðinni. Í tilkynningunni er einnig bent á að Valur geti tryggt sér deildarmeistaratitilinn, en Eyjamenn ætli sér að verja heimavöllinn. „Valur getur tekið titil – en ekki í Eyjum,“ segir þar meðal annars og eru stuðningsmenn hvattir til að mæta tímanlega og skapa góða stemningu á heimavellinum.
Allir leikir 22. og síðustu umferðar Olísdeildarinnar fara fram í kvöld klukkan 19:30:
Stjarnan – Fram
HK – Haukar
ÍBV – Valur
Þór – KA
Selfoss – Afturelding