Niðurstöður Hafrannsóknastofnunar á mælingum þorskstofnsins í mars á þessu ári kom mjög vel út og stofnvísitala þorsks hefur ekki verið hærri frá árinu 1985. Meira hefur fengist af stórum þorski og meðalþyngd hans farið hækkandi undanfarin ár. Vísir menn reikna með að stofnunin mæli með auknum heimildum í veiðum á þorski í kjölfarið.