Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á föstudaginn eftir að hafa verið innan við þrjá sólarhringa að veiðum. Bæði skip voru með blandaðan afla, mest þorsk, ufsa, skarkola og ýsu. Rætt er við skipstjórana um veiðarnar á síðu Síldarvinnslunnar.
Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var ánægður með túrinn. „Við vorum á Selvogsbankanum allan túrinn. Það var fínt veður framan af en síðan versnaði það heldur betur. Í reyndinni var vitleust veður á fimmtudaginn og aðfaranótt föstudagsins. Það gekk vel að veiða og ég reikna með að það verði haldið beint á Selvogsbankann aftur,” sagði Egill Guðni.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var einnig ánægður með fiskiríið. „Við vorum að veiðum á Planinu vestan við Eyjar og síðan á Selvogsbankanum og ánægjulegt var hve aflinn var blandaður. Túrinn var stuttur og ég reikna með að haldið verði á sömu slóðir á ný að löndun lokinni,” sagði Jón.