Lundaveiðitímabilið hófst á laugardaginn 24. júlí en tímabilið í ár stendur aðeins í fimm daga, til 29. júlí sem er næsti fimmtudagur. Lundaveiðitímabilið var einnig í fimm daga í fyrra en slæm staða lundastofnsins gerir það að verkum að lundaveiðitímabilið er stytt úr 55 dögum í aðeins 5. Þetta ákvað bæjarstjórn Vestmannaeyja á fundi sínum 1. júlí.