Mæta með samtals 50 ára starfsreynslu á N4
Margrét Blöndal, hin góðkunna dagskrárgerðarkona, og Sighvatur Jónsson, fjölmiðlamaður frá Vestmannaeyjum, skrifuðu í dag undir samning við N4 um framleiðslu þáttanna �??Að sunnan�?? sem sýndir verða á N4 á miðvikudagskvöldum í vetur.
Margrét og Sighvatur hafa gríðarlega mikla reynslu af fjölmiðlum, hvorki meira né minna en 50 ár samtals.
Margrét Blöndal hefur unnið við fjölmiðla í 31 ár, bæði í útvarpi, sjónvarpi og við blaðaskrif. Undanfarin ár hefur hún stýrt þættinum Bergsson og Blöndal með Felix Bergssyni á Rás2.
�??�?g er full tilhlökkunar. �?g hef fylgst með N4 frá upphafi og það hefur glatt mig mjög að sjá stöðina vaxa og dafna. �?að verður gaman að vinna í skapandi og skemmtilegu umhverfi og þeytast með Hvata um Suðurland þvert og endilangt. �?g er full tilhlökkunar enda erum við strax farin að fá jákvæð og gleðileg viðbrögð frá Sunnlendingum,” segir Margrét Blöndal.
Sighvatur hefur unnið við fjölmiðla í 19 ár, jafnt útvarp sem sjónvarp. Hann er menntaður margmiðlunarsérfræðingur og tölvunarfræðingur frá Danmörku. Sighvatur hefur rekið framleiðslufélagið SIGVA media undanfarin tíu ár sem hefur framleitt heimildarmyndir og sjónvarpsefni fyrir R�?V og 365 miðla. Sighvatur hefur verið fréttaritari R�?V á Suðurlandi ásamt því sem hann er umsjónarmaður Vinsældalista Rásar 2. �??�?að er mjög spennandi að taka þátt í þessu framleiðsluverkefni með N4 á Suðurlandi. Margréti þekki ég vel vegna starfa okkar á Rás 2 og hún er einn jákvæðasti og brosmildasti samstarfsmaður sem ég hef kynnst. Við hlökkum til að taka hús á Sunnlendingum á næstunni og bæta fjórðungnum við ágæta landsbyggðardagskrá N4,” segir Sighvatur.
�?ættirnir �??Að sunnan�?? verða sýndir á miðvikudagskvöldum kl. 18:30 og endursýndir á klukkustunda fresti í sólarhring. Fjallað verður um allt milli himins og jarðar á svæðinu frá Hveragerði til Hafnar í Hornafirði. �??�?að er hreint út sagt algjör himnasending að fá svona hæfileikaríkt og yndislegt fólk með samtals hálfrar aldar reynslu úr bransanum til liðs við okkur. Við á N4 höfum mikinn áhuga á því að færa út kvíarnar og ég er spennt fyrir því að Suðurlandið sé með þessu að bætast við. Svo vona ég auðvitað að fleiri svæði og enn fjölbreyttara efni bætist við í flóruna þegar fram líða stundir,�?? segir Hilda Jana Gísladóttir dagskrárstjóri N4.

Nýjustu fréttir

„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.