Nú er makrílvertíðin að hefjast og voru Huginsmenn fyrstir til að hefja veiðar þetta árið. Að sögn Guðmundar Inga Guðmundsson, skipstjóra hefur veiðin verið ágæt til þessa en Huginn VE var staddur suðaustur af Eyjum þegar Eyjafréttir náði tali á honum í gær, þriðjudag. ,,Við erum bara að reyna að kortleggja þetta eins er og finna út hvar fiskurinn er. Veiðin hefur gengið ágætlega fram að þessu og í þessum töluðu orðum er fínn gangur á þessu. Við erum núna suðaustur af Eyjum sem eru nokkuð hefðbundnar slóðir í upphafi vertíðar. �?að er mikið af síld hérna ef maður fer nær landi, sem er jákvætt, en við þurfum að fara lengra út til þess að finna makrílinn.�?� Huginn VE landaði í síðustu viku rúmlega 300 tonnum og stefna á löndun í dag, miðvikudag rúmum 600 tonnum af hausuðum makríl.
Áður en við kvöddum Inga skipstjóra komst fótboltinn til tals, enda er það umræðuefni sem er á allra vörum þessa dagana. ,,Stemmningin hérna um borð er búin að vera virkilega góð meðan á leikjunum stendur. Maður er eiginlega bara orðlaus eftir leikinn í gær. �?etta er ótrúlegt. �??
Minni makrílkvóti í ár
Leyfilegur heildarafli íslenskra skipa í makríl á þessu ári er 147.824 lestir, samkvæmt regluger. .Til viðbótar er úthlutað 3.825 lestum sem ekki veiddust af óskiptum potti smábáta á síðasta ári. Auk þess sem sum skip geymdu talsvert af heimildum sínum milli ára og mega veiða nú, en geymsluheimild milli ára var aukin í 30% í kjölfar viðskiptabanns Rússa. �?thlutun síðasta árs nam rúmlega 170 þúsund tonnum.
Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar hafa gert með sér samning um makrílveiðar og ákváðu þessi strandríki 896 þúsund tonna aflamark samkvæmt veiðireglu. Miðað við þann kvóta er leyfilegur afli íslenskra skipa 16,5% af heildinni, svipað og verið hefur síðustu ár. Samkvæmt ráðgjöf ICES ætti heildarafli árið 2016 að vera að hámarki 667 þúsund tonn. Ráðgjöf ICES fyrir árið 2015 var að hámarki 906 þúsund tonn og er því um verulegan samdrátt að ræða í ráðgjöfinni.
Afli síðasta árs var hins vegar verulega umfram ráðgjöf og útlit fyrir að svo verði einnig í ár. �?annig eru 896 þúsund tonnin, sem ESB, Noregur og Færeyjar ákváðu sem heildaraflamark um 34% umfram ráðgjöf ársins. Að auki má ljóst vera að afli Íslendinga, Rússa og Grænlendinga verði verulega umfram þau 15,6% sem þeim eru ætluð samkvæmt áðurgreindum þriggja ríkja samningi. Ef litið er á hlut Íslands sem hlutfall af ráðgjöf ICES nemur hann um 22%.