Fyrri áætlanir um malbikun hafa tekið þeim breytingum að malbikun hefst um hádegið í dag en ekki á morgun sem áætlað var.
�?víst var með siglingar Herjólfs í Landeyjarhöfn í gær, sunnudag og áttu tækin að koma í dag og malbik á morgun.
�?ar sem tókst að flytja tækin til Eyja í gær, verður flutningur og útlagning á malbiki möguleg í dag og því sólarhringi á undan því sem áætlað var.
Vonandi gengur þetta verk vel og viljum við biðja bæjarbúa að sýna tillit í umferðinni en þessar framkvæmdir munu raska venjubundnum ökuleiðum fólks.