Nú rétt í þessu lauk afhendingu úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja en sjóðurinn var á sínum tíma stofnaður til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson, fyrrum sparisjóðsstjóra. Afhendingin fór fram í fundarsal Sparisjóðsins en þetta er í 24. sinn sem afhent er úr sjóðnum. Í ár fengu þjóðlagasveitin Mandal, ritnefnd vegna útgáfu bókar með ritverka- og ljóðasafni Árna Árnasonar, Þytur, félag um eflingu tónlistar á landsbyggðinni og héraðsfréttablaðið Fréttir styrk. Nánari umsögn um styrkina má sjá hér að neðan en í kjölfarið var samstarfssamningur Sparisjóðs og Golfklúbbs Vestmannaeyja framlengdur um þrjú ár.