Potsdam, lið markadrottningarinnar Margrétar Láru Viðarsdóttur, varð í dag Þýskalandsmeistari í knattspyrnu fjórða árið í röð er liðið vann stórsigur á botnliði Leipzig, 8:0, í lokaumferðinni. Margrét Lára skoraði sjöunda mark meistaranna í dag eftir að hafa komið inná sem varamaður.