Með nýjungar sem Vestmannaeyingar taka vonandi vel
�??Frá því ég man eftir mér hef ég haft áhuga á húsum og heimilum og öllu því sem þeim viðkemur. Eftir veikindi mannsins míns ákvað ég því að drífa mig í nám til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala árið 2015 til að auka við möguleika mína á vinnumarkaðinum, en ég er menntuð sem grunnskólakennari, framhaldsskólakennari og er núna í meistaranámi við Háskóla Íslands,�?? segir Arndís Kjartansdóttir sem á föstudaginn opnaði formlega fasteignasöluna Eldey við Goðahraun.
�?ar hafa hún og maður hennar, �?mar Steinsson, rekið bílaumboð fyrir BL og veislusal en nú eru þau að víkka út starfsemina. �??Námið var mjög erfitt, þar sem ég hafði ekki grunn í lögfræði, en það gengur mikið út á hana. �?annig að eftir stíft tveggja ára nám útskrifaðist ég með fyrstu einkunn og opnaði fyrirtæki okkar hjóna þann 3. nóvember síðastliðinn í Eldey, Goðahrauni 1.
Mitt markmið er að bjóða Eyja-
mönnum sem og öðrum vandaða og persónulega þjónustu og virkilega halda vel utan um það ferli, að selja eða kaupa eign, þar sem þetta eru almennt stærstu fjárfestingar sem fólk fer í á lífsleiðinni.�??
Arndís segir að stefnan sé að koma inná fasteignamarkaðinn í Eyjum með nokkrar nýjungar og vonar hún að Vestmannaeyingar taki henni vel.
�??Sem dæmi má nefna að ég ætla að sýna allar eignir sjálf, þá býð ég uppá sérstakan ljósmyndara og aðstoða fólk við að undirbúa eignina þeirra fyrir ljósmyndun, ef áhugi er fyrir hendi.
Einnig stefni ég að því að vera virk í því að koma eignum á framfæri á netinu og nota samfélagsmiðla í meira mæli en sést hefur hingað til. Einnig verð ég með opið í hádeginu fyrir þá sem eiga erfitt með að komast frá vegna vinnu og er stefnan að hafa opið frá kl.10.00 til 13.00 til að byrja með. Skrifstofan verður samt sem áður opin frá kl. 10.00 til 16.00 alla virka daga og verður �?mar alltaf til staðar eftir hádegið og getur komið skilaboðum til mín. Svo er nú minnsta mál í heimi að bjalla bara í farsímann minn eða senda mér skilaboð á facebook nú eða tölvupóst.�??
Arndís er í samstarfi við Allt fasteignir og Sólareignir, sem er í eigu þeirra feðga �?orbjörns Pálssonar og Páls �?orbjörnssonar, en þessar tvær fasteignasölur eru með mikið og stórt net af fasteignum, bæði um allt Suðurlandið sem og á Spáni. �??�?annig að markaðssvæðið er stórt og er það til hagsbóta fyrir Eyjamenn, sem vilja kaupa eða selja eign. Vonandi dregur þetta líka enn fleira fólk til Eyja sem vill setjast að hér. Einnig get ég aðstoðað þá sem vilja skoða þann möguleika að kaupa sér sumarhús á Spáni. Endilega verið óhrædd við að kíkja við, alltaf heitt á könnunni og ég lofa því að taka vel á móti ykkur,�?? segir Arndís, löggiltur fasteignasali að lokum.

Nýjustu fréttir

Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.