Meðferðarátak gegn lifrarbólgu C hafið
22. janúar, 2016
Samstarfsverkefni íslenskra heilbrigðisyfirvalda og lyfjafyrirtækisins Gilead sem miðar að því að útrýma lifrarbólgu C á Íslandi er hafið. Kristján �?ór Júlíusson heilbrigðisráðherra staðfesti í dag samning milli Landspítala og Gilead um þetta einstaka lýðheilsuverkefni sem unnið hefur verið að í rúmlega eitt ár að frumkvæði sérfræðinga Landspítalans í samstarfi við velferðarráðuneytið, sóttvarnarlækni og SÁÁ.
Fyrstu sjúklingarnir verða kallaðir til meðferðar í næstu viku en átakið verður unnið í áföngum og um 200 sjúklingar teknir til meðferðar hverju sinni.
Talið er að um 800 – 1.000 einstaklingar séu smitaðir af lifrarbólgu C hér á landi. Stefnt er að því að bjóða öllum sem greindir eru með smit meðferð innan tveggja ára með lyfinu Harvoni sem lyfjafyrirtækið Gilead leggur til verkefnisins. Harvoni er eitt þeirra nýju lyfja sem veita hvað bestan meðferðarárangur og leiðir til lækningar hjá langflestum sem fá meðferð. Lyfin eru gefin í töfluformi daglega meðan á meðferð stendur, að jafnaði í átta til tólf vikur.
Átak sem miðar að því að útrýma lifrarbólgu C
Lifrarbólga C er alvarlegur og í mörgum tilvikum lífshættulegur sjúkdómur þar sem þekktar afleiðingar eru skorpulifur, lifrarkrabbamein og lifrarbilun. Lifrarbólga C er víða um heim algengasta ástæðan fyrir lifrarígræðslu og á Norðurlöndunum stefnir einnig í þá átt, þ.m.t. á Íslandi.
Sigurður �?lafsson, umsjónarlæknir lifrarlækninga á LandspítalaJafn umfangsmikið meðferðarátak við lifrarbólgu C og hér um ræðir á sér vart fordæmi, meðal annars vegna þess hve dýr lyfin eru. Meðferð er jafnan takmörkuð við þá sem eru komnir með lifrarskemmdir á ákveðnu stigi af völdum sjúkdómsins. Ávinningurinn af átaki sem miðar að því að útrýma lifrarbólgu hér á landi ætti því að vera afar mikill fyrir heilbrigðiskerfið til lengri tíma litið þar sem nýgengi skorpulifrar gæti lækkað og þörf fyrir lifrarígræðslur minnkað. �?ess má vænta að góður árangur af átakinu geti orðið öðrum löndum hvatning í baráttunni gegn þessum útbreidda og alvarlega sjúkdómi.
Lyfjafyrirtækið Gilead leggur lyfið Harvoni til verkefnisins í faraldsfræðilegu rannsóknarskyni. Samhliða meðferðarátakinu fara fram rannsóknir á árangri þess til lengri og skemmri tíma, m.a. á sjúkdómsbyrði og áhrif á langtímakostnað við heilbrigðisþjónustu.
Samstarf við SÁÁ
Embætti sóttvarnarlæknis sem fer með yfirumsjón með verkefninu á grundvelli sóttvarnarlaga hefur falið Landspítala umsjón með meðferðarátakinu og gert samning við spítalann þess efnis. Samningurinn gerir göngudeildum Landspítala kleift að hafa sambandi við og bjóða öllum einstaklingum á Íslandi sem greinst hafa með lifrarbólgu C og njóta sjúkratryggingar hér á landi lyfjameðferð gegn sjúkdómnum. Jafnframt heimilar þessi samningur Landspítala að starfa með öðrum heilbrigðisstofnunum að framgangi þessa átaks. Aðalsamstarfsaðili verður SÁÁ en á sjúkrahúsinu Vogi hefur verið unnið mikilvægt starf við skimun fyrir lifrarbólgu C hjá áhættuhópum og einnig á sviði forvarna. Meginstarfsstöðvar átaksins verða því þrjár, á Landspítala við Hringbraut, Landspítala í Fossvogi og á Sjúkrahúsinu Vogi.
Haft verður samband við sjúklinga til að bjóða þeim meðferð.
Stofnuð hefur verið upplýsingasíða um meðferðarátakið á vef Landspítala, auk þess sem upplýsingar eru veittar í gjaldfrjálsu símanúmeri:
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.